Hjálmar - Að grafa sig í fönn

Að grafa sig í fönn

Hér á norðurslóð, nætur eru dimmar
og napur kuldinn leikur suma illa
á hugardjúpin sækja grýlur grimmar
og gleði dagsins verulega spilla.

Von og trú mig vantar núna
von og trú sem yljar hjarta
von og trú sem virkjar krafta
von og trú með ljósið bjarta
von og trú sem vekur gleði
von og trú í myrkrið svarta

Ýmsir rækja vel, heimskuna og háðið
en heldur minna það sem færi betur
að grafa sig í fönn gæti verið ráðið
og gleyma sér í allan, allan vetur.


Söngur, gítar: Þorsteinn Einarsson
Raddir, hljómborð: Sigurður Guðmundsson
Trommur, slagverk: Helgi Svavar Helgason

Written by:
Asgeir Trausti Einarsson, Einar Georg Einarsson, Gudmundur Kristinn Jonsson

Publisher:
Lyrics © Kobalt Music Publishing Ltd.

Lyrics powered by Lyric Find

Hjálmar

Hjálmar

View Profile