Róshildur - Fólk í blokk (v2,3)

Guðmundur góði gaf fulla flösku af blóði
Hann er með ótrúlega sjaldgæft blóð
Sigurður sæti, sendill hjá Ágæti
Hann yrkir ógeðslega væmin ljóð
Vernharður Vífill (sem vill heita Fífill)
Hann ræktar jurtir sem drekka nautablóð og
Steingrímur sterki stal eplinu af Berki og
Segir að ávextir spilli vorri þjóð
Valgerður Vala hún vinnur við að tala
Svarar í síma alveg spreng lafmóð
Svo þegir hún heima og hamast við að gleyma
Vill helst ekki heyra nokkurt einasta hljóð

Við búum öll í sömu blokk í Hólunum
Okkar blokk er langmest skreytt á jólunum
Þótt sumir standi aldrei upp úr stólunum
Er það ekki skrítið hvað sumir segja lítið?
Þeir vakna bara í bítið í sjálfskaparvítið

Written by:
Ólafur Símonarson

Publisher:
Lyrics © O/B/O DistroKid

Lyrics powered by Lyric Find

Róshildur

Róshildur

View Profile